Nú er hafin skráning á umsækjendum fyrir nám á Akureyri næsta haust. Ef nægilegur áhugi er fyrir hendi er stefnt að því að kennsla verði með svipuðum hætti og áður, þ.e.a.s. aðra hvora helgi og eitt kvöld í viku.
Skráning fer fram með þvi að senda póst á netfangi skólans, . Ekki smella á þennan link heldur notið ykkar póstfang.
Nuddskólinn á Akureyri
Það hefur nú verið ákveðið að Nuddskóli Íslands á Akureyri stefni að því að vera með nám í boði næsta vetur. Talsverð eftirspurn hefur verið eftir þessu námi í vetur en ekkert nám hefur verið í boði enda stefnan að vera bara með nám í gangi annað hvort ár.
Nánari upplýsingar birtast eftir nokkra daga.
Útskrift 2011
Átjánda og síðasta útskrift Nuddskóla Íslands fór fram föstudaginn 15. apríl. Að venju var formleg útskrift í Asparfelli og síðan haldið á Hressingarskálann í mat. Þeir hörðustu og skólastjóri enduðu síðan á tónleikum hjá Hjálmum á Nasa.