| Námskeið á vorönn |
|
|
|
|
Eins og sagt hefur verið frá áður verður góðkunningi okkar Larry Koliha og unnusta/aðstoðarkona hans Bethany Ward með námskeið á vegum advanced-trainings í vefjalosun á þessari kennsluönn. Námskeiðin verða í apríl og er forskráning hafin á póstfangi nuddskólans.
Námskeiðin eru eins og áður ætluð þeim sem vilja læra aðferðir til að fást við sértæk vefjavandamál, félagsmönnum FÍHN, áhugasömum nemendum nuddskólans en eru einnig opin öðru fagfólki í græðingar- eða sjúkrageiranum. Þau skötuhjú verða með eins dags námskeið í vefjalosunaraðferðum til að losa um vefjavandamál tengdum hrygg. Fyrir tveimur árum var Larry með tveggja daga námskeið fyrir hrygginn og komust þá færri að en eftir því sóttust. Nú verður úrval úr þessu tveggja daga námskeiði þjappað á einn dag og síðan verður þriggja daga námskeið í meðhöndlunaraðferðum tengdum hryggskekkju sem byggir ofan á grunn hryggjarnámskeiðsins. Hryggjarnámskeiðið verður föstudaginn 4. apríl kl. 13 - 20 Hryggskjekkjunámskeiðið verður laugardaginn 5. apríl 9 - 16 Sunnudaginn 6. apríl 9 - 15 og mánudaginn 7. apríl 9 - 15 Verð á námskeiðunum verður í svipað og verið hefur ca. 10.000 kr. fyrir hvern dag en endanlegt verð og nákvæmari auglýsing verður sett á vefinn í byrjun febrúar. Seinna í apríl nánar tiltekið 25. - 27. apríl er í bígerð að halda námskeið í Rosen - tækni. Rosen kennari frá Finnlandi hefur sóttst eftir samstarfi við NÍ um að halda námskeið til að kenna þetta vinsæla meðhöndlunarform. Þetta er ennþá á undirbúningsstigi og verður betur auglýst síðar. |
| < Fyrri | Næst > |
|---|
