Menu Content/Inhalt
Forsíða
Himnaríki og helvíti PDF Print Senda
Við sem fáumst við það að finna og viðhalda heilbrigði með fólki hugsum oft um hvað þetta allt gengur út á. Í einni skáldsögu sem kom út fyrir jól ,,Himnaríki og helvíti" eftir Jón Kalman Stefánson setur hann áleitnar vangaveltur um lífið í vel valin orð. Þessi orð sem mynda eina málsgrein er hugvekja helgarinnar hér í nánar.

,,Maðurinn er undarleg skepna. Hann hefur beislað náttúruöflin, sigrast á erfiðleikum sem virðast óyfirstíganlegir, hann er drottnari jarðarinnar en ræður svona lítið yfir hugsun sinni og djúpunum undir henni, hvað býr í þessu dýpi, hvernig verður það til og hvaðan kemur það, lýtur það einhverjum lögmálum eða ferðast maðurinn um lífið með háskalega óreiðu innra með sér"

Það virðist sem þessi óreiða geti nefnilega verið háskaleg og stundum þarf að gera sér grein fyrir þessari óreiðu til að ná í meira heilbrigði. Andardráttur hreinsar til í huganum segja þeir sem stunda hugleiðslu og meina að þeir sem nota andardráttinn sem viðfang til að þroska einbeitingu geti tekið til með því að koma auga á óreiðuna.

Að lokum tvær raunsæar og smartar hugleiðingar úr sömu bók um lífið og dauðann. ,,Lifandi líkami er undraverður. En um leið og hjartað hættir að slá, dælir ekki lengur blóði og minningar og hugsanir leiftra ekki lengur undir höfuðskelinni, þá hættir hann að vera undraverður og breytist í eitthvað sem við viljum helst ekki þurfa að finna nafn yfir. Best að láta vísindin um það. Og síðan moldina".

og að lokum:

,,Kuldinn hafði komist að hjartanu, farið inn í það og þá hvarf allt það sem hafði gert hann að því sem hann var. Líkaminn sem var sterkur mjúkur og ósigrandi í æsku sinni er nú ískaldur og satt best að segja til vandræða. Nú þarf að koma honum burt, til síns heima, ef hinir dauðu, eða líkamar þeirra, eiga þá eitthvað heimili. Dauðinn breytir öllu".

Mæli eindregið með þessari sögu.

 
< Fyrri   Næst >

Gestir á vefnum

Núna er/u 19 gestir inni

Skoðanakönnun

Ferð þú inn á þessa vefslóð af því að ...
 

Dagatal

May 2012
S M T W T F S
29301 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Úr myndasafni


 

 

--------------